Safn

Safn fyrir mars 2010

Siðfræðingur á fundi Iðnaðarnefndar

1. mars 2010

Í Iðnaðarnefnd fjöllum við þessa dagana um fyrirhugað gagnaver í Reykjanesbæ og frumvarp sem heimilar iðnaðarráðherra að ganga frá samningum. Þetta er erfitt mál á marga vegu. Atvinnuástandið á Suðurnesjum er það erfiðasta á landinu og auðvitað viljum við öll leggja okkar lóð á vogarskálarnar svo það skáni lítið eitt. Þá er litið á einmitt þetta gagnaver sem hugsanlegan ísbrjót fyrir aðra aðila sem sýnt hafa áhuga á að reka þess konar starfsemi hér. Ísland hentar vel sem gagnageymsla því í hefðbundnu gagnaveri fer stór hluti orkunnar í kælingu á húsunum. Kælingin hér á landi er hins vegar nokkurn veginn ókeypis. Störfin í gagnaverinu er líka fjölbreytt og mörg hver vel borguð ef marka má greinargerð með frumvarpinu. Þá rýmar þessi starfsemi ágætlega við hugmyndir Hreyfingarinnar um að gera Ísland að miðstöð mál- og tjáningarfrelsis.

En lífið er ekki eintóm hamingja. Það flækir málið verulega að frumvarpið gerir ráð fyrir að samið verði við þrjá aðila, Teha Investmenst, Novator og Verne Holdings,  félög sem eru nátengd Björgólfi Thor. Þá spyr ég; Er réttlætanlegt að ríkið semji um ívilnanir sem meta má á um milljarð króna við einn af eigendum gamla Landsbankans á meðan Icesave-skuldin vofir yfir okkur öllum og gæti hugsanlega átt þátt í þjóðargjaldþroti? Það flækir málin enn frekar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er ekki komin og við höfum ekki heildarmyndina.

Ég óskaði eftir því að siðfræðingur frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands kæmi fyrir nefndina og færi yfir siðferðisleg sjónarmið með okkur. Síðast liðinn föstudag kom Salvör Nordal til okkar og áttum við með henni afar góðan fund. Að hennar mati tæki Alþingi og ríkisvaldið mikla áhættu með því að ljúka málinu áður en við hefðum heildarmynd af atburðarásinni, skýrsla rannsóknarnefndarinnar lægi fyrir  og sérstakur saksóknari og dómstólar væru búnir að vinna sína vinnu. Í kjölfarið ræddum við ýmis mál þessu tengd, t.d. reglur um opinbera starfsmenn sem víkja á meðan mál þeirra eru til skoðunar. Þá ræddum við fordæmið og hvaða skilaboð ríkisvaldið væri að gefa með því að semja við þessa aðila. Þá vantar okkur sárlega almenn viðmið eða reglur, bæði út frá viðskiptalegum og siðferðislegum sjónarmiðum, og þá fer umræðan alltaf að snúast um persónur og leikendur en ekki aðstæður. Sennilega þyrftum við sérreglur fyrir næstu fimm árin á meðan ástandið er óeðlilegt. Í þessu tilfelli er bankinn enn í viðamikilli rannsókn og því eðlilegt að taka mið af því. Fyrsta skrefið væri að fresta niðurstöðu þar til niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar liggur fyrir. Þá benti Salvör á að bankar séu sérstök fyrirbæri en ekki hvaða fyrirtæki sem er. Því hljótum við að gera meiri kröfur til þeirra, sem og eigenda og stjórnenda.

Þá ræddum við málin almennt og sagði Salvör að stjórnvöld eiga og þurfi að taka siðferðislega forustu en henni fyndist þau ekki vera að því. Ég gæti ekki verið meira sammála henni. Hvar eiga hinar siðferðislegu vörður að standa? Er það ekki hlutverk stjórnvalda að marka þá leið frekar en að standa afskiptalaus á hliðarlínunni eins og þeim komi málið ekki við?

Author: margret Categories: Greinar Tags: