Skýrsla rannsóknarnefndarinnar
Eftirfarandi er ræða mín frá því í dag.
Frú forseti,
ég veit ekki um neinn Íslending sem kominn er til vits og ára sem finnst vera samfélag okkar réttlátt. Ég veit ekki um neinn sem finnst að hlutirnir séu í lagi á Íslandi, stjórnmálaflokkar starfi í þágu almennings og að allir hafi jöfn tækifæri. Það er ekki bara vitlaust gefið, íslenskt samfélag er nánast óbærilegt vegna spillingar í viðskiptalífinu og stjórnmálum. Þessi tilfinning hefur bærst með okkur lengi en nú höfum við fengið staðfestingu á því hvað það sé nákvæmlega sem er að. Okkar er að vinna úr því, sjá til þess að þeir sem ábyrgð beri axli hana með raunverulegum hætti og tryggja að svona lagað gerist ekki aftur.
Ég vona að skýrslan verði til þess að græða samfélagið. Þjóðin er ýmist dofin eða reið, dofin og reið en nær ekki að vinna úr því áfalli og þeirri sorg sem við urðum fyrir við hrunið. Ég vona að skýrslan og úrvinnsla hennar verði til þess að við komum okkur upp úr hjólförunum, vinnum af æðruleysi að því að breyta því sem við getum breytt og sætta okkur við það sem við getum ekki breytt. En ef hér á einhvern tímann að skapast sátt þarf ýmislegt að gerast fyrst.
Ríkið ábyrgst allar innstæður í bönkum hérlendis en lánþegum er gert að greiða stökkbreytt lán upp í topp. Við hljótum að krefjast leiðréttingar á skuldum heimilanna.
Ég vil benda á að 10 skuldugustu menn landsins skulda 607 milljarða króna. Hvað ætlum við að gera til að fá þessa peninga til baka? Af hverju er ekki búið að frysta eigur þessara mann? Eru þeir enn ósnertanlegir? Ef svo er, hvað getum við gert til að breyta því? Löggjafarvaldið er okkar þingmanna.
Og hvað með stjórnvöld? Það er föst þingvenja að ávarpa þingmenn með orðunum háttvirtur og ráðherra með hæstvirtur. Á sú venja rétt á sér nú þegar sannleikurinn liggur fyrir? Verðskulda þingmenn sem hafa tekið þátt í vafasömum fjármálagerningum, skulda jafnvel 1700 milljónir króna sem þeir eru ekki borgunarmenn fyrir, að vera ávarpaðir með þessum hætti? Frú forseti, ég treysti mér ekki til þess að nota þessi ávarpsorð um suma þingmenn og ráðherra og biðst hér með undan því að nota þau hér í dag.
Á bls. 124 í 1. bindi skýrslunnar viðurkennir Geir H. Haarde að hafa gert þau mistök við myndun ríkisstjórnar árið 2003 að samþykkja kröfur samstarfsflokksins um breytingar á íbúðalánakerfinu sem eru að mati skýrsluhöfunda ein alvarlegustu mistök í hagstjórn á Íslandi síðustu árin. Hann vissi betur en eins og segir í skýrslunni, með leyfi forseta: „Hann hafi metið það svo að væntanlegur skaði fyrir samfélagið væri ásættanlegur kostnaður við það að sitjandi flokkar héldu völdum.“ Ég endurtek: „Hann hafi metið það svo að væntanlegur skaði fyrir samfélagið væri ásættanlegur kostnaður við það að sitjandi flokkar héldu völdum.“
Ég hef setið á þingi í tæpt ár. Í þann tíma hef ég ótal sinnum orðið vitni að því að þingmenn og ráðherrar taki hagsmuni flokksins fram yfir hagsmuni þjóðarinnar. Ég bið þá þingmenn sem þannig hugsa enn að víkja tafarlaust. Þeir sem taka sérhagsmuni fram fyrir sameiginlegan hag allra íslendinga verða að víkja undireins. Þeirra tími er liðinn.
Frú forseti, í gærkvöldi var ég á opnum fundi um skýrsluna. Það var bæði magnað og ógnvekjandi að skynja þá reiði sem ólgar í samfélaginu. Í nótt hófst gos í Eyjafjallajökli. Heit kvikan spýttist úr iðrum jarðar upp í ísinn sem bráðnaði og þandist út þar til hann brast og rennur nú af eyðileggjandi ógnarkrafti niður hlíðarnar. Ég vil leyfa mér að benda á að svipað á sér stað í þjóðarsálinni. Þjóðin hefur beðið, dofin og reið, eftir skýrslunni en nú er reiðin að ná yfirhöndinni og ég viðurkenni að ég óttast þá undiröldu sem ég skynja.
Mun almenningur sætta sig við sýndarafsögn Björgvins G. Sigurðssonar? Á hann að taka á sig syndir þess flokksræðis sem hann gekk á hönd?
Mun almenningur sætta sig við áframhaldandi lausagöngu útrásarvíkinganna?
Mun almenningur sætta sig við að eiga að borga lán sem stökkbreyttust vegna vítaverðs gáleysis stjórnvalda og einbeitts brotavilja eigenda bankanna?
Og hvernig mun reiði almennings brjótast út í þetta sinn? Munu pottar og pönnur duga til að koma boðskapnum áleiðis eða verður gripið til annarra ráða?
Fyrir tæpu ári voru þingkosningar hér á landi. Aldrei hafa fleiri nýjir þingmenn hafið störf samtímis. Hvar eru þeir nú og af hverju verja þeir flokksræðið. Hvar er hugrekkið? Hvar er sjálfstæðið? Af hverju verja þeir gamla kerfið, flokkana sína og leiðtogana?
Frú/Herra forseti. Ég vona að skýrslan hjálpi okkur að græða sár þjóðarinnar. Ég vil halda áfram að búa hérna, ég vil að börnin mín verði Íslendingar. Við eigum að taka skýrsluna alvarlega og bregðast hratt og vel við boðskap hennar. Nú er tími afsagna og ákæra runninn upp. Við búum í réttarríki en réttarríkið verður að gera sér grein fyrir því að ef það grípur ekki í taumana strax mun almenningur gera það sjálfur.
